Sólar og Mánar sameinast 

 

Sólar ehf. og Mánar ehf. hafa náð samkomulagi um að sameina félögin undir nafni Sólar. Fyrirtækin starfa bæði á virkum samkeppnismarkaði þar sem eftirspurn frá viðskiptavinum eftir víðtækri gæða- og heildarþjónustu fer vaxandi. „Við teljum að samlegðaráhrif sé að finna í áherslum og rekstri fyrirtækjanna sem hvort um sig hefur sína styrkleika. Við erum sífellt að huga að leiðum til að þjónusta viðskiptavini okkar með betri og skilvirkari hætti en áður, með sérstaka áherslu á umhverfisvitund. Við bíðum spennt eftir því að fá Kára framkvæmdastjóri Mána og hans öfluga starfsfólk til liðs við okkur“, segir Einar Hannesson framkvæmdastjóri Sólar.

„Mánar hafa vaxið jafnt og þétt undanfarin ár með ákveðinni sérhæfingu til dæmis í ýmissi þjónustu við húsfélög. Við höfum lagt áherslu á hátt þjónustustig og snöggan viðbragðstíma. Með samrunanum verður til enn öflugra félag með aukna samkeppnishæfni og sterkari innviði“ er haft eftir Kára Þráinssyni framkvæmdastjóra Mána.

Sólar eru eitt af stærstu ræstingarfyrirtækjum landsins með um 500 starfsmenn sem starfa við almenn þrif og sérverkefni. Sólar er leiðandi í umhverfisvernd og voru fyrst ræstingafyrirtækja hér á landi til að fá leyfi til að nota Svaninn, norræna umhverfismerkið. Sólar hefur 10 ár í röð verið í hópi Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo og eru á meðal þeirra 2,8% fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Viðskiptablaðsins og Keldunnar um fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri.

Hér er tengill inná heimasíðu Sólar en þar má finna nöfn og netföng allra starfsmanna, ásamt þeim þjónustuþáttum sem Sólar veitir viðskiptavinum sínum. Sólar heimasíða.

Hér má sjá stjórnendur fyrirtækjanna á góðri stund.

Ingunn Margrét Ágústsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og þjónustu Sólar, Rósa Viggósdóttir sviðsstjóri sölu- og markaðsmála Sólar, Gylfi Sævarsson sviðsstjóri sérverkefna Sólar, Sylwia Ostrowska þjónustustjóri Mána, Elísabet Marteinsdóttir verkefnastjóri Mána, Einar Hannesson framkvæmdastjóri Sólar, Kári Þráinsson framkvæmdastjóri Mána.

 

Sólar notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Sólar notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á solarehf.is


Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur